4. desember 2008: Litlu jól VoxFox
Litlu jól VoxFox verða haldin á Café Rosenberg (Klapparstíg 25) 22. desember. Vandamenn, vinir, kunningjar og ókunnugir eru jafn hjartanlega velkomnir.
Tónleikarnir hefjast 21:30 og aðgangseyrir er 1000 kr. Miðasala verður við innganginn. Athugið að posi er ekki á staðnum en hraðbanki er í grenndinni.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kær kveðja,
VoxFox
20. ágúst 2008: VoxFox ásamt gestum
Framundan eru tónleikar VoxFox þar sem góðir gestir munu einnig koma fram, en það eru eðallistamennirnir Páll Óskar Hjálmtýsson, Monika Abendroth og Kristjana Stefánsdóttir. Búist er við miklu eyrnakonfekti og öðru góðgæti svo látið þetta tækifæri alls ekki fram hjá ykkur fara.
Veislan hefst þriðjudaginn 2. september klukkan 20:30 og verður haldin á nýjum Café Rosenberg sem er staðsettur á Klapparstíg 25. Aðgangseyrir er 2000 kr.
18. júlí 2008: Ýmislegt framundan hjá VoxFox
Næstkomandi miðvikudag, þann 23. ágúst, verður VoxFox á léttu nótunum á Næsta bar (á móti Óperunni). Við byrjum klukkan 21 og er miðaverð 1.000 kr. Þann 30. ágúst ætlum við okkur síðan að halda hugljúfa tónleika og verða nákvæmari upplýsingar um stað- og tímasetningu ásamt miðaverði birtar hér. Síðan verðum við, ásamt gestum, með stórtónleika VoxFox 2. september. Við tilkynnum þegar nær dregur hvar og hvenær þeir verða haldnir og svo að sjálfsögðu hverjir gestirnir verða. Að lokum er gaman að geta þess að um miðjan september höldum við til Svíþjóðar á alþjóðlegt a cappella mót þar sem "grúppur" hvaðan af úr heiminum koma saman. Við duttum einnig í lukkupottinn og vorum valin ásamt nokkrum öðrum úr hópi fjölda þátttakenda til þess að taka þátt í master clössum sem verða kenndir =) Gaman gaman, stay tuned ;)26. nóvember 2007: Yndislegir tónleikar yfirstaðnir
Afar vel tókst til á tónleikunum í Listasafni Íslands þar sem bæði VoxFox og Monika Abendroth stóðu sig með stakri prýði. Afbragðs mæting var á tónleikana og þökkum við öllum þeim sem á hlýddu kærlega fyrir komuna.
22. nóvember 2007: VoxFox ásamt Moniku Abendroth í Listasafni Íslands
Næstkomandi sunnudag (25. nóvember) verðum við með tónleika í Listasafni Íslands. Tónleikarnir hefjast klukkan 18. Efnistök eru fengin víða að en heildarsvipur tónleikanna verður í hugljúfari kantinum og ætlar Monika Abendroth að leika með okkur á hörpu. Einnig verður frumflutt verk eftir Hreiðar Inga. Miðaverð er 1500 kr.
15. júlí 2007: Tónleikar á Gr?na Hattinum.
Þökkum Norðlendingum fyrir góðar móttökur á tónleikum okkar, Græna Hattinum.9. júlí 2007: Vel heppna?ir tónleikar á Sólheimum
Sumartónleikar VoxFox í Sólheimakirkju þann 23. júní s.l. heppnuðust með eindæmum vel og var húsfyllir upp á 200 manns. Við þökkum þeim sem á hlýddu sem og Sólheimum fyrir höfðinglegar móttökur =)19. maí 2007: Stúdíóupptökur
Laugardaginn 19. maí dvaldi VoxFox í stórglæsilegu stúdíói Valgeirs Sigurðssonar, Greenhouse. Dagurinn var virkilega skemmtilegur og afraksturinn verður ábyggilega góður.Hvað er VoxFox?
VoxFox er sex manna raddband sem sérhæfir sig í flutningi tónlistar a cappella, eða án undirleiks. Við kjósum að kalla okkur raddband, "hljómsveit án hljó?færa", þar sem það er mun meira lýsandi orð fyrir það sem við gerum heldur en t.d. "sönghópur".Efnisdagskrá er afar fjölbreytt, popp, rokk, jazz og klassík. Aðalmarkmiðið er að flytja tónlist sem hughrífur fólk en engin takmörk eru fyrir því hvers konar tónlist á í hlut. Hópurinn hefur víða komið fram og við mismunandi tækifæri: á krám, bæði á sameiginlegum sem og eigin tónleikum, á ráðstefnum, í veislum, í brúðkaupum, jólahlaðborðum og á hinum ýmsu menningarviðburðum s.s. Menningarnótt svo dæmi séu tekin. Allir meðlimir VoxFox voru eða eru í e.k. tónlistarnámi.

